Í gær var svo sem bara venjulegur dagur nema ég átti afmæli í gær.
Ég og Hannes fórum til Reykjavíkur að skila af okkur jólagjöfum til
vina og vandamanna, enda er það gott að vera búin að því.. það er
nú meira stressið í Reykjavík fyrir þessi jól, maður má þakka fyrir
að komast úr stað

.... Eftir að hafa beðið í 40 mínútur í röð við
þjónustuborð kringlunnar þegar reiknistofa bankanna fraus var
þolinmæði mín búin

.. bara til að kaupa gjafabréf fyrir pabba minn
sem komst ekki í kringluna eða í bæinn til að kaupa það. En við
héldum upp á afmælið mitt með því að fara að borða á Ítalíu og við
fengum okkur geggjað pasta.. klikkar aldrei

Hannes gaf mér kjól
og skó sem ég fékk að velja sjálf og ég ætla að vera í því á
jólunum, geðveikt flott!! en við enduðum kvöldið með því að hitta
vini okkar og gefa þeim jólagjöf auk þess að hitta bróðir minn og
siggu og gefa þeim líka jólagjöf

.. þannig að þetta var alveg
ágætur dagur og mjög ánægð með hann. Mamma gaf mér hálsmen sem hún
gerði sjálf á silfurnámskeiði, rosa flott, pabbi gaf mér bók,
tengdó gaf mér bol sem er hægt að nota líka sem kjól. Á næsta ári
verður stór afmæli og þá verður sko haldið upp á það með pompi og
prakt enda ekki annað hægt :haha mig langar að fá að vita úr
prófunum mínum og á erfitt með að meðhöndla það að ég fái ekki að
vita nema í janúar sem er allt of langt þangað til

en þangað til
næst.....